20. nóvember 2008 klukkan 15:49
var að baka köku:'
60 gr létt majó
30 gr hveiti
30 gr undanrennuduft
1 tsk lyftiduft
2 tsk kanil
1 tsk sætuefni
80 gr létt ab mjólk
1 epli
---> eplið rifið hent inn í öbban smá stund
--->öllu hinu hrært saman, besta að hræra sætuefni með majó eða ab mjólk
--->eplið hrært saman við, sett í 6 möffinsform
--->bakað við 200 gráður slatta langastund
Étið með bestu lyst
1 kaka er 1 kross í fitu--hálfur kross í extra --- 1 kross í mjólk og 1/6 af ávexti.
Þetta eru ágætis klessur með kaffinu
:)
Kveðja
Heiða
17. nóvember 2008 klukkan 11:24
GÓÐ vika að baki...sem og 2,4 kg. Næsta vika tekin við
Ašalheišur Siguršardóttir
16. nóvember 2008 klukkan 18:45
Mikið skelfingar er til mikið af sætindum í heiminum, og mikið af fólki sem að sárnar ef maður borðar það ekki.
Fetaði meðalveginn, fékk mér lítið en eitthvað, en drakk þeim mun meira af kaffi.. Er svo alveg lens núna með kvöldmat.. lngar ekki í neitt össössössssssssssssssssssssssssss best að fara að leita
14. nóvember 2008 klukkan 09:52
jæja þetta gengur hér allt saman er á fimmta degi, kvölmaturinn í gær lenti í einhverju bulli en það nær ekki lengra.
Ég hef voða lítið að segja svo sem,vona að allir hafi það sæmilegt.
Ašalheišur Siguršardóttir
11. nóvember 2008 klukkan 09:57
hæ bara að tékka inn.. er að koma mér í gang aftur er á degi tvö... ÉG verð að taka völdin í mínar hendur. ÉG ræð!!
25. september 2008 klukkan 13:24
allt í glimrandi góðu frá þessum vigstöðvum..
Mataræðið á bullandi blússi....
Drengurinn orðinn bleiulaus...
Kallinn kílói léttari..
Stelpan búin að taka til í herberginu sínu..
Kjellan brosandi...
ekki hægt að biðja um það betra nema ef skyldi vera eina Sænskahúsræstikonu.
Ašalheišur Siguršardóttir
Almennt |
24. september 2008 klukkan 10:54
Hérna Árný mín leggðu þetta á minnið ég spyr þig útúr næst þegar að ég hitti þig hahahah
Fjórir staðir sem ég hef búið á:
- Hvolsvöllur
- Keflavík
- Garður
- Selfoss
Fjögur störf sem ég hef unnið um æfina.
- Leikskólastarfskona
- Fiskverkakona
- Afgreiðslukona í sjoppum
- uppvaskari á bar
Fjórar bíómyndir sem ég gæti horft á aftur og aftur
- pretty woman
- Shrek
- Fýkur í hæðir
- Dalalíf
Fjórir sjónvarpsþættir sem mér líkar
- House
- CSI
- plain sight
- swing town
Fjórir staðir sem ég hef heimsótt í fríum
-Köben til Árnýjar
- Flatey
- mývatn
-Emstrur
Fjórar bækur sem ég hef lesið
-áður en ég dey
- Bíbí
- sjálfsætt Fólk
- Ástir á tímum Kólerunar :(
Fjórir staðir sem ég vildi heldur vera á núna
- Úti á vinnumarkaðnum
- Emstrur
- Erlendis
- Í rúminu mínu
jæja takk fyrir gott hljóð, þá þarf ég að klukka einhvern obb obb bobb.
Kristín Hrefna, Heiða Njóla, Dídí, Sigga Júlla.
Ašalheišur Siguršardóttir
22. september 2008 klukkan 13:17
...góðu dagarnir hver á fætur öðrum.
Þá er ég búin með eina danska viku og svona óopinber vigtun segir 4 kg af!! :))
Mest megnis vatn og bjúgsöfnun en any how 4 kg!
Sem þýðir að ég er farin að sjá þessa tveggjastafa tölu aftur jejjjjjj!
Er aðeins að reyna að taka inn einhverja smá hreyfingu, smellti mér á krossþjálfan í gær og æææ hann er ekki alveg fyrir mig.. en reyni fremur og fremur:)
Ég skundaði svo upp að kirkjugarði í morgum með frelsisvagninn á undan mér, tók þetta svolítið á ferðinni helv.. fínt bara. Stefni svo á aðra frelsisvagnsgöngu nú seinnipartinn þegar börnin fara að vakna. Þarf að ná á pósthús á einhvern afar skemmtilegan bókapakka þar.. ég veit Beta susss!
Annars smelltum við hjónin okkur á fjöll með börnin okkar bæði og tvö að auki um helgina, fengum okkur góðan bíltúr með pabba og Mömmu, Hjördísi og Gunnari, Sirrý og Bjössa og Helgu. Bara gaman og fallegt, sáum tvöfaldan regnboga í hagléli og foss sem vissi ekki hvort að hann átti að fara niður eða upp.
Síðan var margt um góða gesti í gær, Erla og Bensi komu að sækja börnin sín og þáðu einn bolla hvort, síðan kom Kirkjuvegs fjölskyldan Gugga, Oddur og Árný og fengu meira að segja með kaffinu.
En nú ætla ég að fara að ganga frá og nýta tíman í eitthvað gagnlegra en þessa helv.. tölvu!
OJJ það rignir!
mbk Heiða
Ašalheišur Siguršardóttir
19. september 2008 klukkan 10:01
Jæja ég er hér enn... búin að vera upptekin við að troða fitu í gangnamunagötin gengur svona líka ljómandi vel.
Steikti mér túnfisk í gærkveldi með fullt af léttsteiktu"soðnu" grænmeti og léttri mangó-karrý sósu. slurrrrrrp rosa gott síðan var það jarðaber og súkkulaðisósa í desert jamm jamm.
En já nóg um það.. ég passaði börn i gær svo sem ekki til frásögufærandi Ætla að passa þau aftur um helgina.. frábær börn enda systurbörnin mín...
ÉG er að fríka út á þessu veðri maður minn lifandi... ég og öll börnin líka, því við komumst ekkert út fyrir rigningu og roki.
Æ vitið ég hef ekkert að segja, ég er húkkt á fjésið núna, það getur verið skemmtileg en er líka algjör tímaþjófur.
jææja best að fara að gera eitthvað..t.d ná koppnum af rassinum af Sigurþór, hann er að hætta með bleiu en er það bara á kopp í staðinn allan daginn rennir sér á honum eftir parkettinu, það eru að vera komnar gjár eftir koppinn, en við skulum hafa þetta á seiglunni..... Áfram Ísland, eins og hann segir
Bless í bili
Ašalheišur Siguršardóttir
16. september 2008 klukkan 11:42
Jæja þá er ég búin að grafa mér göng út úr nammiskápnum... alveg hræðilega löng göng búin að grafa sveitt í allt sumar með við komu í kúalalúmpur( er það ekki annars langt í burtu?)
En allavega þá er ég búin að steypa upp í gangnamunann í fimmtugasta og sjötta skipti, notaði sterka fljótþornandi steypu, fylli svo reglulega í götnn með aukakílóunum sem að ég ætla að skilja eftir mig.
Það er sem sagt dagur tvö á danska (já ég veit 2*56 eru 112) og gengur glimró vel... mig langar svolítið að fara að skreppa á fundi aftur.. en nenni ekki að fara allllllllllllla leið til reykjavíkur alein. en er að spá í þessu öllu.
Nú fyrst að ég er orðin ráðsett frú þá er víst ekki seinna vænna en að fara að líta vel út hahaa
ég er búin að rembast hér eins og ´rjúpa við staurinn að setja inn brúðarmynd... kann ekki get ekki kannski seinna!
Ætla að fara að gefa að borða
un til later
Ašalheišur Siguršardóttir